
Ný staðsetning
Kæru vinir, ég hef fært starfsemi mína í stúdíóið LEIÐIN HEIM, Laugavegi 178 við Bolholt, 3. hæð, sem er einungis 30 metra frá núverandi staðsetningu og er vel merkt við inngang. Hlakka til að sjá ykkur.
Endurheimtu þitt náttúrulega jafnvægi
KAP stendur fyrir Kundalini Activation Process. Kundalini-orkan er grunnuppspretta allrar lífsorku innra með öllum lifandi verum, uppspretta allrar orku sem við notum í daglegu lífi. Í KAP-tímum vinnum við í því að endurvekja lífsorku þína og koma henni í jafnvægi. Líkaminn býr yfir þeim einstaka eiginleika að geta komið jafnvægi á sig aftur, endurnýjað sig og læknað – þegar lífsorkan er í jafnvægi.

Kap Tímar
Mælt er með því að þú mætir í þægilegum fatnaði. Dýnur, teppi og púðar eru á staðnum. Þú liggur einfaldlega á jógamottu og/eða teppi á gólfinu í u.þ.b. klukkustund, færð snertingu yfir ákveðna punkta líkamans, s.s. enni, bringubein, lófum og iljum og lífsorkan leitar þangað sem hennar er þörf. Stundum finnst þátttakendum eins og þeir séu límdir við gólfið, þeir ná dýpri slökun en nokkru sinni fyrr (eins og í djúpu hugleiðsluástandi) á meðan aðrir upplifa líkamleg viðbrögð, t.d. ósjálfráðar hreyfingar, skjálfta, danshreyfingar eða hláturskast. Allt er þetta eðlilegt þegar lífsorkan þín fer af stað.
Upplifunin er einstaklingsbundin og 90% þátttakenda finna svörun í fyrsta tíma. Fyrir einstaka aðila tekur nokkra tíma að ná fyrstu viðbrögðum. Tilfinningarleg hreinsun getur átt sér stað í tímunum, svo sem gömul sorg eða reiði, en öll viðbrögð þín, bæði andleg og líkamleg, eru rétt fyrir þig á hverjum tíma. Margir einstaklingar finna fyrir breytingum næstu daga eftir KAP-tíma, svo sem betri svefn, meira jafnvægi, jákvæðara lundarfari, ánægjulegri samskiptum og almennt meiri vellíðan í lífinu.