Kap Tímar

Kap Tímar

6.500 kr

Minnum á staðsetningu, sem er Eden yogasetur á Rafstöðvarvegi.

Mælt er með því að þú mætir í þægilegum fatnaði. Dýnur, teppi og púðar eru á staðnum. Þú liggur einfaldlega á jógamottu og/eða teppi á gólfinu í u.þ.b. klukkustund, færð snertingu yfir ákveðna punkta líkamans, s.s. enni, bringubein, lófum og iljum. Stundum finnst þátttakendum eins og þeir séu límdir við gólfið, þeir ná dýpri slökun en nokkru sinni fyrr (eins og í djúpu hugleiðsluástandi) á meðan aðrir upplifa líkamleg viðbrögð, t.d. ósjálfráðar hreyfingar og / eða skjálfta.

Upplifunin er einstaklingsbundin.

Fyrir einstaka aðila tekur nokkra tíma að ná fyrstu viðbrögðum. Tilfinningarleg hreinsun getur átt sér stað í tímunum, svo sem gömul sorg eða reiði, en öll viðbrögð þín, bæði andleg og líkamleg eru boðin velkomin.